Við úttekt úr lífeyrissjóðum, umsóknir um lífeyrir hjá Tryggingastofnun og/eða aðstoð við tekjuáætlun.
Það vefst fyrir mörgum, þrátt fyrir áform um að hefja töku lífeyris að sækja um greiðslu lífeyris hjá lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun. Enn aðrir vilja að óháður aðili aðstoði við þetta ferli með hagsmuni viðkomandi númer eitt að leiðarljósi.
Það er mikilvægt að tekjuáætlun sé sem réttust svo að ekki komi til hárra endurgreiðslna eða bakkrafna frá Tryggingastofnun sem fólk getur verið misvel fjárhagslega undirbúið fyrir.
Í tekjuáætlun þarf meðal annars að leggja mat á frádráttarbærar tekjumyndandi eignir sem hafa skerðingaráhrif á greiðslur frá Tryggingastofnun.
Að leiðarljósi er ávallt að mánaðarlegar ráðstöfnunartekjur verði sem hæstar að teknu tilliti til allra þátta.